Tuesday, July 6, 2010

Ævintýrið er núna!

Eins og flestir vita hefur karlalið Selfoss mátt þola talsverða ágjöf í síðustu leikjum sínum í Pepsídeildinni. Eftir tap í sex leikjum í röð fer að reyna nokkuð á taugar og þol bæði leikmanna, aðstandenda og áhorfenda. Hins vegar er þetta staða og veruleiki sem raunhæft var að búast við og vonandi hafa flestir búið sig undir þennan mótbyr. Það er því einmitt núna sem þörf er á að minna sig á að fótboltaævintýrið er samt sem áður hér og nú! Eftir fljúgandi ferð upp úr 2.deild, gegnum þá fyrstu og upp í þá efstu var ekki að búast við stórum afrekum. Okkur dreymdi um að spila meðal þeirra bestu, heimsækja, og fá til okkar, öll “stóru” liðin, horfa á og njóta – og það þurfum við e.t.v. stundum að minna okkur á!

Marmiðið Selfoss eru raunhæf – að ná að halda liðinu í deildinni, og þrátt fyrir allt er liðið enn ofan við fallsætið. Ef þau marmið nást verður aftur blásið til sigurhátíðar í haust, en við megum samt sem áður ekki láta tapleiki skyggja á gleðina í fótboltaveislunni sem við erum stödd í.

Þó að allir leikir séu mikilvægir og gefi jafn mörg stig er sérstök ástæða til að hvetja fólk til að flykkjast til Grindavíkur á næsta leik Selfoss. Þar eigum við möguleika á að styrkja stöðu liðsins í deildinni og halda því ofan við fallsæti enn um sinn.

Að lokum er ástæða til að hvetja fólk til að fylgjast með kvennaliði Selfoss, en það er eins og margir vita á mikilli sigurgöngu í sumar. Það er einmitt sérlega gott til þess að vita á þessum tíma og blæs vonandi strákunum byr í brjóst í sinni báráttu!