Tuesday, April 3, 2012

Athafnagleði úr öskustó

“Mars” er skemmtilega tvírætt orð. Fyrir utan mánuðinn sjálfan, og reikistjörnuna, þá stendur “mars” fyrir einhverskonar samstylla og vasklega framgöngu. Það var þannig sérlega vel til fundið fyrir nokkrum árum að nota þennan tíma árs, þegar líka talsverðar sólar er farið að gæta á ný, til að leiða saman hinar ýmsu greinar innan hönnunargeirans undir yfirskriftinni “Hönnunarmars”. Hápunktur þessarar hátíðar var einmitt um nýliðna helgi en sýningar og fl. standa eflaust lengur.

Víst er að sköpunar- og athafnagleði er mikil í kringum hátíð þessa og henni hefur vaxið fiskur um hrygg á liðnum árum, ekki síst núna í kjölfar hins ágæta efnahagshruns! “Ágæta” sagð’ann, og nú hrökkva eflaust lesendur í kút, og vissulega var efnahagshrunið bæði skaðlegt og óþarft. Hinsvegar er fátt eitt svo með öllu illt að ekki boði nokkuð gott. Sköpunarkraftur, frumleiki og athafnagleði virðist því miður vera í nokkuð öfugu hlutfalli við efnahagslega stöðu þjóðar. Og það má vissulega tína til fleira jákvætt. Þættir eins og umhverfisvernd, nægjusemi og umhyggja fyrir náunganum eru svið sem virðast dafna í efnahagslægð. Jafnvel sjálf hamingjan virðist vaxa, a.m.k. hjá mörgum í þeim stóra meirihluta þjóðar sem ekki á í alvarlegum fjárhagskröggum, en hafa t.a.m. endurheimt dýrmætan tíma með vinum og fjölskyldu…. En aftur að efninu!

Í stuttu erindi mínu sem ég hélt á þingi landslagsarkitekta í tengslum við á Hönnunarmars, sem fjallaði um “útirými”, sagði ég m.a. frá kynnum mínum af uppbyggingu í Malmø í Svíðjóð, eða Málmey eins og okkur er kennt að segja (ætli Danir kalli Reykjavík Røgvik eða eitthvað álíka?). Ég hafði áður heyrt af metnaðarfullri uppbyggingu á tilteknum borgarhluta sem hófst fyrir um 15 árum, en þegar ég heimsótti svæðið s.l. haust og mér var kynnt sú hugmyndavinna sem að baki lá oppnuðust fyrir mér nokkuð nýjar dyr.

Málmey var, að nokkru leyti líkt og Ísland nú, illa stödd bæði fjárhagslega og félagslega eftir því sem leið á seinni hluta síðustu aldar. Gömul stór iðnfyrirtæki lögðu upp laupana og atvinnuleysi fór vaxandi. Það var þá, í miðri öskustónni, sem þeim virðist hafa tekist að skapa samstöðu um nýja framtíðarsýn, stefnu og „athafnagleði“! Ákveðið var að horfa til framtíðar með fjórar nýjar stoðir: 1) efling háskólans á staðnum, 2) „vegleg“ tenging við Kaupmannahöfn, 3) gera borgina sjálfbæra og 4) byggja upp aflagt iðnaðar- og hafnasvæði á nýtískulegan hátt og efna þar til stórsýningar á borgarhverfi framtíðarinnar!

Ekki kann ég góð skil á hvernig háskólinn var efldur en hann telst í dag afar eftirsóknaverður og hlutfall ungmenna með góða menntun og sterkari félagslega stöðu en áður, hefur aukist. Sem hluti af þessu stóra plani var gerð Eyrarsundarbrúarinnar sem tengir saman Málmey og Kaupmannahöfn með brúarmannvirki og undirgöngum (fyrir báta að sigla yfir) fyrir bíla og lestar. Þannig var hugmyndin að gera borgirnar tvær að einu og sama íbúðar- og atvinnusvæði. Samfara þessu hafa verið stíginn mjög ákveðin skref til aukinnar sjálfbærni í Málmey. Þannig skulu ný hverfi vera sjálfum sér nóg um orku og vatn og frá þeim skal ekki fara neinn úrgangur. Málmey er einnig í dag miðstöð rannsókna með græn húsþök og fleira mætti til telja.

Síðasta atriðið, sem kom mér sjálfum á þetta spor, var svo nýja íbúðahverfið og sýningin „Bo01“. Þar var helstu hönnuðum og sérfræðingum á sviði sjálfbærni og framtíðarmiðuðum tæknilausnum smalað saman til að teikna ramman fyrir framtíðar-borgarhverfið. Hverfið e nýtískulegt að sjá en þó þannig að húsagerð er láreist og þétt, efnisnotkun hlýleg, forgangur gangandi og hjólandi er alger, en hverfið er síðan vel tengt almenningssamgöngum. Hverfið hefur sína eigin vindmyllu, yfirborðsvatn er öllu veitt í opna farvegi og affall er hreinsað og/eða endurnýtt. Ýmsar félagslegar tilraunir eru í gangi, s.s. með sérstakri bílaleigu ofl. Í húsum er leitast eftir sjálfvirkri loftræstingu og sólarrafhlöður er staðalbúnaður. Nú er kominn yfir 10 ára reynsla á hverfið og mikil lærdómur sem draga má af hvernig til hefur tekist með hvert og eitt atriði. Í dag eru á svæðinu á annað hundrað framsækinna smáfyrirtækja og stórhuga uppbygging bæði þar um kring, svo og í Málmey allri standa yfir.


Þessa nálgun Málmeyinga á viðfangsefninu mættum við Mörlandar svo sannarlega taka okkur til fyrirmyndar til framtíðar!

Tuesday, December 28, 2010

Vantar hægri flokk á Íslandi?

Setti eftirfarandi hugleiðingu inn um "lúguna" á Eyjunni í febrúar s.l. Eitthvað virðist hafa gerjast síðan þá!
-----------------

Hef oft velt því fyrir mér af hverju ekki sé til hefðbundinn, alvöru hægri flokkur á Íslandi, eins og víðast hvar í Evrópu. Þætti fróðlegt í því samhengi að heyra umfjöllun og greiningu stjórnmálafræðinga á flokka-flórunni hér miðað við annars staðar í Evrópu.

Þótt maður kunni lítil skil á stjórnmálasögu og fræðum sem slíkum finnst mér það liggja í augum uppi að sá stjórnmálaflokkur sem hefur kennt sig við hægri á Íslandi, þ.e. Sjálfstæðisflokkurinn, á ekki nema að takmörkuðu leyti hugmyndafræðilega samleið með hægri flokkum í Evrópu.

Í Evrópumálum skiptist Sjálfstæðisflokkurinn algerlega í tvennt, svo sterklega reyndar að í fyrirsjáanlegri framtíð er ekki að sjá að hann muni geta staðið fyrir heilsteyptri sýn á þau mál. (Það gerir reyndar að mínu mati flokkinn allt að því ótækan í stjórnmálum, svo brýnt sem málefnið er, en það er önnur saga). Hér á Sjálfstæðisflokkurinn samleið með Vinstri grænum í Evrópumálum meðan að í Evrópu eru það aftur á móti hægri flokkarnir sem fara fyrir Evrópusambandsaðild!

Afstaða til landbúnaðar er önnur þversögn miðað við hefðbundna evrópsku hægristefnu. Varla er hægt að segja að flokkurinn standi vörð um hagsmuni neytenda, frelsi einstaklingsins, afnám tolla og hafta ásamt frjálsum markaðsbúskap í þeirri grein. Hér á flokkurinn algera samleið með Framsóknarflokknum.

Þversögn hugmyndafræði flokksins birtist síðan í algerlega óbeisluðu og eftirlitslausu frjálsræði í fjármálageiranum sem birtist m.a. í niðurlagningu Þjóðhagsstofnunar á sínum tíma og óbilandi trú hugmyndasmiða flokksins á innibyggðu eftirliti markaðarins sjálfs! Hér birtist flokkurinn sem nánast öfga-hægri flokkur á bandaríska vísu, sem aftur ekki á mikla samleið með hefðbundna evrópska hægri flokknum.

Það færi því að mínu mati vel á því að framsýnt hægrifólk á Íslandi næði að losa sig úr viðjum vanans og sameinaðist um góðan og gegnan hægri flokk. Hann myndi sækja hugmyndafræði sína til Evrópu í stað Ameríku, væri:
  • frjálslyndur og framfarasinnaður í stað íhalds og afturhalds, t.d. í trúmálum, innflytjandamálum, málefnum samkynhneigðra, kvennréttindum og þróunaraðstoð
  • stæði fyrir heilbrigðar markaðslausnir, þar sem ríkið gæti samt sem áður verið virkur þáttakandi í fjármála, atvinnu- og menningarmálum sem aftur tryggir eftirlit og ákveðna hlutdeild allra
  • væri opinn fyrir nýhugsun, breytingum og framförum t.d. í landbúnaði, náttúruvernd og nýtingu auðlinda
  • bæri hag neytenda fyrir brjósti hvað varðar vöruverð, vöruúrval
  • stæði fyrir stöðugu fjárhagsumhverfi einstaklinga, fjölskyldna og fyrirtækja hvað varðar vaxtastig, gengi gjaldmiðla og afnám vísitlölubindingar
  • stæði vörð um velferð allra þegna landsins þótt markaðsbúskapur og frelsi einstaklingsins væru höfð að leiðarljósi

Sjálfstæðismenn sem við núverandi kringumstæður virka nánast brottrækir úr eigin flokk, eins og Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi formaður, og Vilhjálmur Egilsson væru t.d. verðugir hugmyndasmiðir góðs hægri flokks á Íslandi. Ég held a.m.k. að það sé fullt af hægra fólki á slandi sem nú er villuráfandi innan Sjálfstæðisflokksins, og einnig utan hans, sem ætti fullt erindi inn í íslensk stjórnmál, ekki síst við núverandi aðstæður undir merki evrópsk hægri flokks.

Monday, December 13, 2010

Eftirá-skýring

Greip með mér blað kiwanismanna í Bónus í hádeginu. Þar er fróðleg grein eftir eldfjallafræðing um gosið í Eyjafjallajökli. T.d. um að heildarmagn kviku (samanlagt magn ösku og hrauns) var svipað í gosinu í Fimmvörðuhálsi, Vestmannaeyjum 1973 og Öskju 1961. Kvikumagnið var síðan 10 sinnum meira í Eyjafjallajökli en Fimmvörðuhálsi, en það kom mest í formi gjósku eins og menn muna.

Það sem hinsvegar situr eftir hjá mér er þessi lýsing fræðingsins á undanfara gossins: "Gosin....áttu sér langan aðdraganda. Árið 1994 byrja jarðskjálftahrynur undir eldfjallinu.... sem eru endurteknar árið 1996 og 1999-2000. Það var strax ljóst að hraunkvika var að brjóta sér leið djúpt úr möttli jarðar".

Þetta er náttúrulega "augljóst" öllum núna eftir gosið. Það hefði hins vegar verið fróðlegt að fá fregnir af þessari augljósu staðreynd fyrir gosið!

Tuesday, July 6, 2010

Ævintýrið er núna!

Eins og flestir vita hefur karlalið Selfoss mátt þola talsverða ágjöf í síðustu leikjum sínum í Pepsídeildinni. Eftir tap í sex leikjum í röð fer að reyna nokkuð á taugar og þol bæði leikmanna, aðstandenda og áhorfenda. Hins vegar er þetta staða og veruleiki sem raunhæft var að búast við og vonandi hafa flestir búið sig undir þennan mótbyr. Það er því einmitt núna sem þörf er á að minna sig á að fótboltaævintýrið er samt sem áður hér og nú! Eftir fljúgandi ferð upp úr 2.deild, gegnum þá fyrstu og upp í þá efstu var ekki að búast við stórum afrekum. Okkur dreymdi um að spila meðal þeirra bestu, heimsækja, og fá til okkar, öll “stóru” liðin, horfa á og njóta – og það þurfum við e.t.v. stundum að minna okkur á!

Marmiðið Selfoss eru raunhæf – að ná að halda liðinu í deildinni, og þrátt fyrir allt er liðið enn ofan við fallsætið. Ef þau marmið nást verður aftur blásið til sigurhátíðar í haust, en við megum samt sem áður ekki láta tapleiki skyggja á gleðina í fótboltaveislunni sem við erum stödd í.

Þó að allir leikir séu mikilvægir og gefi jafn mörg stig er sérstök ástæða til að hvetja fólk til að flykkjast til Grindavíkur á næsta leik Selfoss. Þar eigum við möguleika á að styrkja stöðu liðsins í deildinni og halda því ofan við fallsæti enn um sinn.

Að lokum er ástæða til að hvetja fólk til að fylgjast með kvennaliði Selfoss, en það er eins og margir vita á mikilli sigurgöngu í sumar. Það er einmitt sérlega gott til þess að vita á þessum tíma og blæs vonandi strákunum byr í brjóst í sinni báráttu!

Monday, May 31, 2010

Úrslitin í Árborg

Skrifaði rétt fyrir kosningar, í færslu sem birt var á fréttavef Sunnlenska.is, um mikilvægi þess að greiða einhverju framboði athvæði sitt í stað þess að sitja heima eða skila auðu. Það sýnir sig nú í gegnum úrslit kosninganna í Árborg að dræm þátttaka og mikill fjöldi auðra athvæða hefur haft afgerandi áhrif á niðurstöðuna.

Mjög athyglisvert er að skoða niðurstöðurnar í Árborg m.t.t. þess sem að baki þeim liggur. Í fjölmiðlum er sagt frá því að Sjálfstæðisflokkurinn hafi "bætt við sig" 10% fylgi, farið úr 41% í 51%. Ef hinsvegar er litið á raunverulegt fylgi flokksins þá kemur í ljós önnur og athyglisverð mynd. Árið 2006 voru 5041 á kjörskrá. Flokkurinn fékk 1686 athvæði sem samsvarar athvæðum 33,4% kjósenda. Árið 2010 voru 5453 á kjörskrá. Sjálfstæðisflokkurinn fékk 1883 athvæði, og það sem kemur á óvart er að það svarar einungis til 34,5% kjósenda sveitarfélagsins! Nær lægi væri því að segja að flokkurinn hefði bætt við sig 1,1% fylgi. Það sem fjölmiðlar hins vegar kalla "fylgi flokkanna" er aftur á móti aðeins hlutfall þeirra athvæða sem greidd voru einhverjum flokki eða framboði, ekki hlutfall kosningabærs fólks eða þeirra sem mættu á kjörstað.

Það sem hinsvegar gerðis í Árborg var það að flokkar meirihlutans töpuðu fylgi, Samfylkingin 38%, Framsóknarflokkurinn 23% og Vinstri græn 10% af sýnu fylgi frá síðustu kosningum. Þessi athvæði skilu sér hins vegar nema að mjög litlu leyti til Sjálfstæðisflokks, heldur voru þau þess í stað einfaldlega ekki nýtt! Því var það í þessum kosningum léleg þátttaka og mikil fjöldi auðra seðla sem skópu þau úrslit sem raun ber vitni. Það er vonandi til umhugsunar fyrir þá sem þannig nýttu sér sinn kosningarétt.

Hins vegar má ljóst vera að vangaveltur þessar eru skrifaðar í anda persónulegra vonbrigða með úrslitin og þeim má vel taka sem slíkum! Hinsvegar er ég sem fyrr afar gagnrýnin á kosningakerfið almennt (sbr. síðustu færslu) og þá mynd sem fjölmiðlar draga upp af vilja og skilaboðum kjósenda með framsetningu úrslita kosninga. Staðreyndin er sú að Sjálfstæðisflokkurinn í Árborg er kominn með hreinan meirihluta með athvæðum einungis um 1/3 kosningabærs fólks á bak við sig. Sé þetta haft í huga, ásamt þeirri staðreynd að leiðtogi flokksins fékk einungis stuðning frá u.þ.b. helmingi sinna eigin manna í prófkjöri, er vægast sagt umhugsunarvert á hvaða lýðræðislegu forsendum leiðtoginn er kominn til æðstu valda í sveitarfélaginu.

Valið

Senn skal kosið til sveitastjórna. Hið pólitíska umhverfi hefur tekið á sig nýjar myndir. Þjóðin lifir í skugga efnahagshruns og kjósendur eru margir uppgefnir, bitrir og ringlaðir yfir ástandi mála. Ný framboð, og framboð sem ekki tengjast gömlu flokkunum, fá víða mikið fylgi í skoðanakönnunum, og þær gefa einnig til kynna að meirihlutar falli á mörgum stærri stöðum landsins. Fræðingar velta fyrir sér skilaboðum kjósenda og flest bendir til að fólk vilji refsa gömlu flokkunum sem verið hafa við stjórnvöl landsmála síðastliðin ár.

Hér kristallast ókostir flokkakerfisins í kringum sveitastjórnamál. Landsmálapólitíkin þvælast í raun bæði fyrir frambjóðendum og kjósendum sveitarfélaga. Sem betur fer er það stefna núverandi ríkisstjórnar að breyta þessu kerfi þannig að hinn almenni kjósandi fái sjálfur að velja fólk á þann lista sem það kýs og vonandi þróast framboðin frá því að vera tengd stjórnmálaflokkum.

En hvernig á þá fólk að fara með þennan dýrmæta rétt sinn til að kjósa eins og staðan er í dag? Hér í sveitarfélaginu Árborg hafa hlutirnir æxlast þannig að hér hafa ekki komið fram ný framboð og valið stendur á milli „gömlu fjórflokkana“ sem svo eru stundum nefndir (þótt tveir þeirra séu reyndar mjög ungir!). Að þessu leyti eru kosningarnar bundnar flokkunum og fólk hefur ekki val um að kjósa „óánægjuframboð“, hafi fólk áhuga á því. Margir hugsa sem svo að hægt sé að láta í ljós óánægju með kerfið með því að hunsa kosningarnar eða skila auðu. Það hefur þó þann ótvíræða ókost að um leið er í raun verið að fela öðrum að velja fyrir sig því það eru jú einungis athvæði greidd framboðum sem telja! Ég er því á því að sem flestir taki þátt, hvort sem fólki þyki kostirnir mis-góðir eða mis-slæmir!

Í ljósi augljósra galla á kosningakerfinu er það mín skoðun að kjósendur ættu að láta landsmálin sem mest liggja milli hluta, ekki kjósa eða útiloka flokka út frá t.d. afstöðu til ríkisstjórnar eða ábyrgðar flokka á „Hruninu“. Hér í Árborg, sem og víða annarstaðar, er þrátt fyrir allt nokkuð venjulegt fólk sem er að bjóða fram krafta sína í þágu samfélagsins og það á skilið að vera metið af eigin verðleikum. Við verðum einfaldlega að meta hvernig mál hafa verið unnin af flokkum meirihlutans á liðnu kjörtímabili og velta fyrir okkur hvernig líklegt er að minnihlutinn hefði staðið að málum. Það eitt gefur okkur vísbendingu um hvernig þau munu vinna úr málum á næsta kjörtímabili. Þá verðum við að taka með í dæmið almenn viðhorf og persónueiginleika frambjóðenda og þá skipta hlutir eins og samstarfshæfileikar miklu máli.

Flokkadrættir mega hinsvegar ekki ónýta góðar hugmyndir og vissulega hafa allir eitthvað til síns máls. Í Sjálfstæðisflokknum er oft drífandi og duglegt fólk, gjarnan í eigin atvinnurekstri. Stundum geta reyndar of mikil tengsl við atvinnulífið og athafnamenn verið erfið þegar kemur að úthlutun lóða og leyfa eða þegar fylgja þarf reglum um málsmeðferð.

Framsóknarflokkurinn fór í nokkuð óvænta „óvissuferð“ í upphafi kjörtímabilsins með meirihlutasamstarfi við Sjálfstæðisflokk. Sú ferð endaði í ógöngum þegar sinna þurfti hagsmunagæslu og „stytta þurfti boðleiðir“ varðandi skipulagsmál miðbæjarins.

Vinstri græn standa fyrir mörg virðingaverð málefni og hugsjónir. Hins vegar er erfitt fyrir flokkinn að algerlega óþekktur einstaklingur skipi fyrsta sæti listans, því þrátt fyrir allt þá snúast sveitastjórnamál að miklu leyti um persónur en ekki flokka. Í öðru sæti þar er svo landsþekkti bóksalinn sem var fyrsti þingmaður sögunar til að segja af sér vegna sinnar yfirsjónar, og er hann maður að meiru fyrir vikið!

Að gefnu tilefni mæli ég svo með því að fólk fari sérstaklega yfir hvort beinskeyttur áróður Sjálfstæðisfélagsins í Árborg standist nánari skoðun. Veltum t.d. fyrir okkur eftirfarandi atriðum:
  • hvort gagnrýni Sjálfstæðismanna á meinta óráðsíu minnihlutans sé raunhæf,
  • hvort staða sveitarfélagsins væri betri í dag ef t.d. byggt hefði verið fjölnota íþróttahús fyrir 5-600 milljónir á kjörtímabilinu eins og lofað var,
  • hvort stöðug og markviss uppbygging annara íþróttamannvirkja hefði átt sér stað allt kjörtímabilið,
  • hvort fasteignir sveitarfélagsins hefðu hugsanlega verið seldar fasteignafélagi sem í dag væri líklega gjaldþrota,
  • hvort geymslufé sveitarfélagsins hefði verið geymt á bankabók í stað peningamarkaðssjóðs,
  • hvort laun bæjarstjóra væru lægri og fríðindin minni (þó það liggi nú eiginlega alveg fyrir því þeir gerðu nú samning við einn bæjarstjóra á kjörtímabilinu)
  • hvort líklegt sé að flokkurinn og frambjóðendur hans nái farsælu samstarfi við stjórnendur í sveitarfélaginu um frekari ráðdeild í rekstri,
  • hvort líklegt sé að stjórnunarkostnaður minnki umtalsvert þegar hann er með þeim allra lægsta á landinu nú þegar,
  • hvort boðskapurinn um „styttri boðleiðir“ sé e.t.v. annað orð yfir „fyrirgreiðslupólitík“,
  • hvort líklegt sé að jafnræðis og yfirvegunar verði gætt í skipulagsmálum sé litið til upphlaupsins í kringum skipulag miðbæjarins sem sprendi síðasta meirihluta D og B lista.

En fyrst og fremst skora ég á fólk að nýta athvæðarétt sinn og kjósa en láta ekki aðra um að ákveða fyrir sig um skipan mála.

Monday, April 19, 2010

Sáttarleið

Velti því upp í síðustu færslu að ábyrgði á bankahruninu hlyti að liggja hjá bankastjórnendum og helstu eigendum bankana. Erfiðara er að deila augljósri ábyrð stjórnvalda á efnahagshruninu niður á einstaka stjórnmálamenn og flokka. Engu að síður hefur almenningur í landinu eðlilega þörf fyrir að sjá áþrifanlegt uppgjör og auðmýkt stjórnmálamanna fyrir ástandinu.

Bent hefur verið á að þeir stjórnmálamenn sem hafa vikið á einhvern hátt hafa í raun allir gert það af öðrum ástæðum en að hjá þeim liggi einhver pólitísk ábyrgð! Geir Haarde og Ingibjörg Sólrún fóru frá af heilsufarsástæðum, Davíð Oddson var færður úr Seðlabankanum nánast með valdi og þeir þingmenn sem nú eru að "taka sér frí" gera það að meira eða minna leyti fyrir sína flokka en ekki til að koma til móts við réttlætiskennd almennings.

Því velti ég því hreinlega fyrir mér hvort þingmenn Hreifingarinnar hafi lög að mæla þegar þeir mæla með því að stór hluta þingmanna, að eigin frumkvæði, víki hreinlega af þingi til tveggja ára við þessar aðstæður. Ekki endilega til að axla einhverja tröllvaxna persónulega ábyrg á hruni hins íslenska efnahagslífs heldur frekar á því að hafa verið virkir þátttakendur í stjórn landsins og því stjórnmála- og efnahagsumhverfi sem á endanum hrundi. Línan sem dregin yrði í þessu sambandi væri: allir ráðherrar ríkisstjórna frá einkavæðingu bankana, þeir sem teljast hafa verið virkir þáttakendur í spilaborg viðskipta- og fjármálalífs síðustu ára ásamt þeim sem þegið hafa miljóna styrki frá fyrirtækjum fyrir pólitísk framboð sín.