-----------------
Hef oft velt því fyrir mér af hverju ekki sé til hefðbundinn, alvöru hægri flokkur á Íslandi, eins og víðast hvar í Evrópu. Þætti fróðlegt í því samhengi að heyra umfjöllun og greiningu stjórnmálafræðinga á flokka-flórunni hér miðað við annars staðar í Evrópu.
Þótt maður kunni lítil skil á stjórnmálasögu og fræðum sem slíkum finnst mér það liggja í augum uppi að sá stjórnmálaflokkur sem hefur kennt sig við hægri á Íslandi, þ.e. Sjálfstæðisflokkurinn, á ekki nema að takmörkuðu leyti hugmyndafræðilega samleið með hægri flokkum í Evrópu.
Í Evrópumálum skiptist Sjálfstæðisflokkurinn algerlega í tvennt, svo sterklega reyndar að í fyrirsjáanlegri framtíð er ekki að sjá að hann muni geta staðið fyrir heilsteyptri sýn á þau mál. (Það gerir reyndar að mínu mati flokkinn allt að því ótækan í stjórnmálum, svo brýnt sem málefnið er, en það er önnur saga). Hér á Sjálfstæðisflokkurinn samleið með Vinstri grænum í Evrópumálum meðan að í Evrópu eru það aftur á móti hægri flokkarnir sem fara fyrir Evrópusambandsaðild!
Afstaða til landbúnaðar er önnur þversögn miðað við hefðbundna evrópsku hægristefnu. Varla er hægt að segja að flokkurinn standi vörð um hagsmuni neytenda, frelsi einstaklingsins, afnám tolla og hafta ásamt frjálsum markaðsbúskap í þeirri grein. Hér á flokkurinn algera samleið með Framsóknarflokknum.
Þversögn hugmyndafræði flokksins birtist síðan í algerlega óbeisluðu og eftirlitslausu frjálsræði í fjármálageiranum sem birtist m.a. í niðurlagningu Þjóðhagsstofnunar á sínum tíma og óbilandi trú hugmyndasmiða flokksins á innibyggðu eftirliti markaðarins sjálfs! Hér birtist flokkurinn sem nánast öfga-hægri flokkur á bandaríska vísu, sem aftur ekki á mikla samleið með hefðbundna evrópska hægri flokknum.
Það færi því að mínu mati vel á því að framsýnt hægrifólk á Íslandi næði að losa sig úr viðjum vanans og sameinaðist um góðan og gegnan hægri flokk. Hann myndi sækja hugmyndafræði sína til Evrópu í stað Ameríku, væri:
- frjálslyndur og framfarasinnaður í stað íhalds og afturhalds, t.d. í trúmálum, innflytjandamálum, málefnum samkynhneigðra, kvennréttindum og þróunaraðstoð
- stæði fyrir heilbrigðar markaðslausnir, þar sem ríkið gæti samt sem áður verið virkur þáttakandi í fjármála, atvinnu- og menningarmálum sem aftur tryggir eftirlit og ákveðna hlutdeild allra
- væri opinn fyrir nýhugsun, breytingum og framförum t.d. í landbúnaði, náttúruvernd og nýtingu auðlinda
- bæri hag neytenda fyrir brjósti hvað varðar vöruverð, vöruúrval
- stæði fyrir stöðugu fjárhagsumhverfi einstaklinga, fjölskyldna og fyrirtækja hvað varðar vaxtastig, gengi gjaldmiðla og afnám vísitlölubindingar
- stæði vörð um velferð allra þegna landsins þótt markaðsbúskapur og frelsi einstaklingsins væru höfð að leiðarljósi
Sjálfstæðismenn sem við núverandi kringumstæður virka nánast brottrækir úr eigin flokk, eins og Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi formaður, og Vilhjálmur Egilsson væru t.d. verðugir hugmyndasmiðir góðs hægri flokks á Íslandi. Ég held a.m.k. að það sé fullt af hægra fólki á slandi sem nú er villuráfandi innan Sjálfstæðisflokksins, og einnig utan hans, sem ætti fullt erindi inn í íslensk stjórnmál, ekki síst við núverandi aðstæður undir merki evrópsk hægri flokks.
No comments:
Post a Comment