Monday, February 22, 2010

Bloggað á nýju svæði

Er mættur aftur á bloggið, á þessu ágæta bloggsvæði. (Nú er maður hvorki hýstur hjá "Baugsmiðlum" eða "Útvegsblaðinu"/"Dabbanum"!). Var áður búinn að blogga dálítið á Moggablogginu en kunni ekki við að vera bendlaður við það blað eftir að það byrjaði með sitt áróðursstríð með tilkomu nýrra eigenda og D.O. þangað.

Ætla líka að reyna að safna hér saman því helsta sem ég hef párað síðustu misserin um menn og málefni. Sem fyrr er þetta mest fyrir mann sjálfan en líka þá sem áhuga kunnað að hafa.

No comments:

Post a Comment