Bændurnir já, víla þetta ekki fyrir sér!
Finnst sjálfsagt að það fari 10 milljarðar úr tómun ríkissjóð í allskonar styrki og niðurgreiðslur til þeirra. Þetta sé besta fyrirkomulag sem til er og því megi nú alls ekki breyta.
Finnst líka ekkert sjálfsagðara en að skattgreiðendur borgi líka félagsgjöldin þeirra, litlar 500 milljónir til að halda úti Bændasamtökunum sínum.
Á sama tíma krefjast þeir eignaréttar á stórum hluta lands og landsgæða, eigi bæði fjöll og dali - svona privat!
Nú svo eru það skuldirnar, þær eiga helst einhverjir aðrir að taka á sig að verulegu leyti. Atla Gíslasyni finnst jafnvel koma til greina að setja sérlög á fjármögnunarfyrirtæki til að þurka út skuldir bænda!
Segi bara eins og skáldið: "Var það eitthvað fleira sem ég get gert fyrir yður?"
Tuesday, March 2, 2010
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment