Ástandið er nú reyndar ekki alslæmt!
Samdráttur í þjóðarframleiðslu í fyrra var minni en spáð var (6,5% í stað 8-10%). Og það sem meira er:"Landsframleiðsla er talin hafa aukist um 3,3% að raungildi frá 3. ársfjórðungi 2009 til 4. ársfjórðungs 2009. Fjárfesting jókst um 16,6%, fyrst og fremst vegna kaupa á skipum og flugvélum. Einkaneysla jókst einnig um 1,4%..." (af vef Hagstofu íslands). - og þetta án þess að "Icesave" deilan sé leyst!
Það sem stendur þessari þjóð fyrir þrifum er ekki stjórn eða stjórnarandstaða heldur aðgangur að erlendu lánsfé. Án þess er tómt mál að tala um fjárfestingar hér og uppbyggingu þar. Þessvegna þarf bæði að leysa "Icesave" og að öðru leyti ná sátt við evrópskt og alþjóðlegt bankakerfi. Þessu mættu fleiri fara að átta sig á sem glymja hátt þessa dagana!
Friday, March 5, 2010
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment