Tuesday, March 2, 2010

Stjórnleysi?

Talsvert ber á upphrópunum, aðallega frá miðaldra körlum sýnist mér, um að það sé stjórnleysi á Íslandi um þessar mundir. Það er eðlilegt, þetta eru aðallega sjálfstæðismenn og þeir kunna best við einræðið sem hér ríkti!

Hvað finnst annars sjálfstæðismönnum um beitingu forsetans á málskotsréttinum, finnst þeim það hafa verið þjóðinni til ógagns? Vildu þeir ekki fella þennan rétt burtu, eða a.m.k. að hann hefði ekkert með að beita þessu ákvæði? Sagt er að eftir synjun forsetans sé komið fram samningstilboð sem spari þjóðinni 50 milljarða miðað við það sem var. Sem betur fer var þetta ákvæði í stjórnarskránni, sem betur fer beitti forsetinn því, sem betur fer náðu sjálfstæðismenn ekki að kveða það í kútinn á sýnum tíma og sem betur fer eru þeir ekki við völd!

No comments:

Post a Comment