Monday, March 8, 2010

Rangtúlkun Bjarna Ben.

Þá er þjóðarathvæðagreiðslan búin. Þrátt fyrir að umfjöllunarefnið væri úrelt og úrslitin löngu ljós (enda engin sem mælti með já-i) vildi ríkisstjórnin ekki hindra framgang lýðræðisins og réttar fólks að fá að kjósa. Þetta ber að meta. Gleymum því ekki að það var ekki sjálfgefið. Ríkisstjórn undir forustu Davíðs Oddssonar tók þennan rétt af fólki þegar hún var í sömu stöðu á sínum tíma. Því til viðbótar var þá ausið út þvílíkum fúkyrðaflaumi í garð forsetans landsins fyrir að hindra með þessum hætti framgang mála ríkisstjórnarinnar!

Það kemur því úr hörðustu átt, og er engan vegin viðeigandi, þegar núverandi formaður Sjálfstæðisflokksins segir niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunar sýna að sjálfstæðismenn "hefðu haft rétt fyrir sér"!

Í fyrsta lagi þá var það ekki andstæða sjálfstæðisflokksins eða röksemdarfærsla þeirra sem færði landinu betri samningsaðstöðu gangvart viðsemjendum okkar. Það má augljóst vera að það var synjun forsetans og sú athygli sem hún vakti og sá stuðningur sem sem okkur barst víða að í kjölfarið sem gaf okkur þessa bættu samningsstöðu. Af þeirri ástæðu lágu fyrir mun betri samningsdrög en áður, þegar athvæðagreiðslan okkar fór fram. Af þeirri ástæðu var enginn að hveta fólk til að segja já og þess vegna sögðu svo til allir nei sem tóku þátt.

Ef við hinsvegar hefðum búið við stjórnunarhætti og viðhorf Sjálfstæðisflokksins þá ætti forsetinn helst ekki að geta neitað lögum staðfestingu (sem augljóslega hefur nú fært okkur betri stöðu) eða að öðrum kosti yrðu lögin dregin til baka og kosningarétturinn þannig tekinn af almenningi.

No comments:

Post a Comment